Bókarýni
Myrká, Arnaldur Indriðason
Fékk þessa bók lánaða hjá Grétu tengdamömmu enda veit hún að ég er forfallinn aðdáandi og hef drukkið bækurnar hans í mig eina eftir aðra og er ég nú búinn að lesa þær allar. Þegar ég fékk Myrká lánaði þá var ég í miðri bók eftir Viktor Arnar Ingólfsson sem heitir Engin spor. Ég lagði hana snarlega frá mér og hóf hina tulhlökkunarverðu athöfn sem er lestur nýrrar bókar eftir Arnald. Ég tek það fram að þetta segir ekkiert um bókina hans Viktors. Hún lofar góðu það sem ég var búinn að lesa og ég hlakka til að klára hana. Ég hef áður lesið frábærar bækur eftir Viktor. Nægir þar að nefna Flateyjargátu sem var tilnefnd árið 2004 til Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna. Og ekki síður Aftureldingu sem spennuþættirnir mannaveiðar (sýndir í sjónvarpinu á þessu ári) voru gerðir eftir. Jæja nóg um það.
Höfundur:
Arnaldur Indriðason.
Myrká; Gefin út í kiljuformi 2008, af Edda útgáfa, Vaka Helgafell.
Úrdráttur af bókakápu: Í snyrtilegri íbúð í Þingholtunum finnst fáklæddur ungur maður liggjandi í blóði sínu. Engin merki eru um innbrot eða áflog en óminnislyf í jakkavasa vekja grunsemdir um illar fyrirætlanir. Vísbendingarnar leiða lögregluna fljótlega á slóð dulins ofbeldis og hrottalegra sálarmorða, harma sem aldrei verður hefnt til fulls. Myrká er tólfta skáldsagan eftir vinsælasta höfund landsins. Arnaldur Indriðason hefur hlotið fjölda viðurkenninga á alþjóðlegum vettvangi, meðal annars breska Gullrýtinginn, ein eftirsóttustu verðlaun heims í flokki sakamálasagna
Umsagnir og einkunnir lesenda:
Vilhjálmur Bragason, miðvikudagur 12. nóvember 2008 09:23 Einkunn: 3 stjörnur
Nýjasta bók Arnaldar Indriðasonar, Myrká, er góð glæpasaga með hæfilegri þjófélagsádeilu eins og höfundarins er von og vísa. Aðalpersóna bókarinnar er að þessu sinni ekki Erlendur heldur Elínborg, sem ætti að vera öllum þeim sem hafa lesið fyrri bækur Arnaldar kunn (en Erlendur kemur að sjálfsögðu við sögu í þeim persónulegu erindum sem við skildum við hann í Harðskafa).
Í Myrká finnst ungur maður látinn í íbúð sinni í Reykjavík. Aðkoman erhrottaleg og það er strax ljóst að maðurinn hefur verið myrtur. En rannsókn þessa glæps á bara eftir að leiða Elínborgu inn á slóðir annara glæpa sem ekki eru síður skelfilegir. Inn í frásögnina fléttar Arnaldur svo fjölskyldulífi Elínborgar og matreiðsluáhuga á skemmtilegan hátt. Á köflum finnst manni hann dæla fram heldur mikið af upplýsingum, en þegar á heildina er litið er Myrká dökk spennusaga úr íslensku samfélagi sem heldur manni í greipum sér allt til enda.
Hallur Ólafur - þriðjudagur 18 nóvember 2008 05:27 Einkunn: 2 stjörnur
Góð bók eins og flestar hans sögur. Saknaði reyndar Erlendar en Elínborg gat klárað sig fram úr þessu. Fannst stundum langdregin en í heildina litið, ágætt.
Kolbrún Ósk Skaftadóttir – fimmtudagur 20 nóvember 2008 02:2 Einkunn: 4 stjörnur
Flott bók eftir Arnald. Elínborg er alveg að gera sig í aðalhlutverkinu að mínu mati, ég er alveg til í aðra bók með henni næstu jól ef því er að skipta
Það eru engin jól án Arnaldar svo ég mæli með að þið séuð dugleg að kaupa hana þessa svo við hvetjum hann nú til að stoppa ekki skrifum á krepputímum.
Ingólfur Sigurðsson – mánudagur 23 desember 2008 02:2 Einkunn: 3 ½ stjörnur
Ein af aðgengilegri bókum Arnaldar.
Ég þekki nokkra lesendur sem hafa Harðskafa liggjandi uppi á hillu eða á náttborðinu og gengur illa með hana. Ég hef bent þessu fólki á að hvíla sig á Harðskafa í smá tíma, lesa Myrká í einum rykk og taka síðan til við Harðskafa aftur. Myrká er miklu aðgengilegri en Harðskafi að mínu mati án þess að mér finnist hún betri, því það finnst mér í rauninni ekki. Hins vegar er Arnaldur ótrúlega naskur að hitta á „heit“ málefni til að fjalla um í bókum sínum. Það gerir hann í Myrká. Mér finnst ekkert saka að gefa gamla lögguskriflinu honum Erlendi smá frí. Plottið er nokkuð gott, ekkert mjög flókið og frekar gagnsætt eins og oft hjá Arnaldi. Það er ekkert sem kemur ofboðslega á óvart í þessari bók. Enn sem komið er held ég að ég verði að segja að Grafarþögn sé besta bók Arnaldar enn sem komið er.
Sólkross, Óttar M. Norðfjörð
Fékk Sólkrossinn í afmælisgjöf frá Bjarna Grétari mínum og Betu kærustunni hans. Ég var búinn að láta fólk vita að mig langaði í þessa bók. Ástæðan er mjög einföld. Ég las Lykil Abrahams í fyrra (fékk hann í jólagjöf að mig minnir). Lykill Abrahams er svona formúlubók að hætti Dan Brown. Gott ef hún var ekki auglýst sem slík. Hún seldist í bílförmum og fékk mjög fína dóma. Ég var búinn að heyra að Sólkrossinn væri alls ekki jafn góð bók og Lykill Abrahams. Þess vegna renndi ég mér í lesturinn með frekar takmarkaðar væntingar og mér fannst bókin, fyrir utan blábyrjunina, fara fremur rólega af stað. Persónuuppbyggingin var samt markviss og góð og allar persónur trúverðugar nema ég var ekki alveg að samsama mér með grunnskólakennurunum sem voru í vettvangsferð með barnahóp í Þjóðminjasafninu
Höfundur: Óttar Martin Norðfjörð. Sólkross; Gefin út í harðspjaldaformi 2008, af „Sögur útgáfa.“
Úrdráttur af bókakápu: Skrifstofu umdeilds fornleifafræðings er breytt í heiðinn blótstað og Embla Þöll er kölluð á vettvang. Þar með hefst æsispennandi háskaför sem dregur hana og kærasta hennar, Adam Swift sem lesendur þekkja úr Hnífi Abrahams, djúpt ofan í heim svika, haturs og gamalla leyndarmála sem teygja sig aftur til landnámsmanna Íslands. Sólkross er Sagnfræðileg spennusaga sem sækir í víkingafortíð Íslendinga. Höfundurinn byggir bókina á róttækum kenningum um fyrstu landnámsmennina sem leiða lesandann í eltingaleik um týnd hof, norræna goðafræði, horfna kirkjugrunna og sífellt nær elsta leyndarmáli þjóðarinnar.
Að sögn höfundar var hann með hugann við að gera tilraun með að skrifa svona flugvallarmetsölubók þegar hann vann að „Hnífnum“, en þessi (Sólkross) er rólegri og skandinavískari. Það er gaman að heyra Óttar upplýsa að “Sólkross er byggð á róttækum kenningum Einars Pálssonar um fyrstu landnámsmennina. Lesandinn er leiddur í eltingarleik um norræna goðafræði og horfna kirkjugarða, og elsta leyndarmál þjóðarinnar er jafnvel upplýst í bókinni. „Það þekkja fáir kenningar Einars en þeir sem kynna sér þær fá þær alveg á heilann,” ”segir Óttar, sem sökkti sér í fræðin. „Einar var þaggaður niður á sínum tíma af ríkjandi fræðimönnum, en er smátt og smátt að fá uppreisn æru. Það er hálfgerður neðanjarðarheimur í kringum kenningar hans. Þegar ég var að skrifa bókina fékk ég skuggalegt símtal og var spurður hvort ég væri að skrifa um Einar Pálsson. (ÚFF!! KANNAST EINHVER VIÐ ÞESSA FRASA VARÐANDI DAN BROWN).
Óttar M. Norðfjörð er menntaður heimspekingur, sem hefur gefið út ljóðabækur, ævisögur og skáldsögur. Sólkross er önnur spennusaga hans en sú fyrsta, Hnífur Abrahams, var meðal mest seldu skáldsagna árið 2007 og hlaut mikið lof gagnrýnenda og almennings. Norðfjörð er umsvifameiri en margur fyrir þessi jól, því hann sendir frá sér þrjár bækur: Sólkross, teiknimyndasöguna Tíu litla bankastráka og þriðja og síðasta bindið í ævisögu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar: Gissurarson?
Óttar segir að sig hafi langað til að brydda upp á einhverju nýju, „láta gott af mér leiða og fá umbun í staðinn“, segir hann og hlær við í tilefni þess að hann efndi á dögunum til kynningarhátíðar í húsi Máls og menningar. Höfuðtilgangur uppákomunnar var að kynna Sólkrossinn sem hann segir sjálfstætt framhald Hnífs Abrahams með íslenskri sögu í forgrunni.
Alla jafna segist Óttar lítið gaman hafa af að lesa upp, hann sé ekki spenntur fyrir því að setja sig á stall frammi fyrir lesendum sínum.
„Það er ekki gaman að vera í svo mikilli fjarlægð frá fólki, en mér finnst aftur á móti mjög gaman að hitta lesendur mína og spjalla við þá. Þá kvikna líka oft hugmyndir sem skila sér síðan í næstu skáldverk.
Fyrsta spennusaga Óttars, Hnífur Abrahams, var meðal mest seldu skáldsagna árið 2007 og hlaut mikið lof gagnrýnenda og almennings „Óttar Norðfjörð… skærasta stjarnan á íslenskum bókmenntahimni.“
No comments yet.
Leave a Reply
-
Archives
- January 2009 (9)
- December 2008 (34)
- November 2008 (12)
- September 2008 (1)
- March 2008 (3)
- February 2004 (2)
- January 2004 (4)
- October 2003 (1)
- June 2003 (6)
- April 2003 (1)
- March 2003 (6)
- February 2003 (4)
-
Categories
-
RSS
Entries RSS
Comments RSS