Ingólfur Sigurðsson bloggar

Segðu fátt en segðu það vel

38°C

Ufff.Hrikalega heitt her i dag og fint ad setjast i skuggann vid tolvuna og “vinna” adeins. 38 stig i dag og litid haegt ad afreka i slikum hita annad en ad busla i vatninu og drekka bjor:-) Aetlum a strondina a morgun tar er tho sma gola. Rosalega lida dagarnir hratt, verdur kominn midvikudagur adur en madur veit af. IS
Bloggari: Ingólfur

21/06/2003 Posted by | Óskilgreint | Leave a Comment

Costan er ljúf .. …

Hae allir. Sit her a NetCafé a Costa del Sol og tek mer sma break ur solinni. Buinn ad vera ad skila inn verkefnum a namskeidinu hja Laru Stefans. Her er dasamlegt ad vera, 30 stiga hiti og fint ad hlada adeins batteriin. Ekki langur timi (1 vika) en samt mjog fint. Skrifa meira seinna. Kvedja Is
Bloggari: Ingólfur @ 6/20/2003 03:55:00 PM

20/06/2003 Posted by | Óskilgreint | Leave a Comment

Spánn í augsýn :-)

Úff, búinn að skila samskiptaverkefninu á ensku. Skil nr 4 komin, 1 eftir auk viðbragða við öðrum greinum. Ætti að geta afgreitt það á einhverju góðu netkaffi á Costunni:-) Pökkun stendur nú yfir á fullu. Tekur því ekki að fara að sofa því við þurfum að leggja af stað út á Keflavík kl. 02:20 (skelfilegur tími). Verður bara hrotið í vélinni. Blogga örugglega eitthvað í vikunni. Is
Bloggari: Ingólfur

17/06/2003 Posted by | Óskilgreint | Leave a Comment

Verkefnapuð

Ár og öld síðan ég bloggaði síðast. Er nú að rembast við að klára sem mest af verkefnunum hjá henni Láru Stefánsd. Verð að koma sem mestu í verk í dag því í nótt fljúgum við fjölskyldan til Spánar þar sem við ætlum að eiga stutt frí (1 viku) á Costa del Sol. Reyni að vera í sambandi þaðan eins og aðstæður leyfa. Sett hérna inn hlekk á myndir af nýjasta “barninu” okkar, honum Vaski. Kveðja IS
Bloggari: Ingólfur

17/06/2003 Posted by | Óskilgreint | Leave a Comment

Lokaverkefnisáhyggjupælingar ………

Rosalega er langt síðan ég hef bloggað. Er að reyna að komast áfram í verkefnavinnunni, aðal áhyggjurnar tengjast lokaverkefninu. Sé ekki annað en það hafi verið tóm della hjá mér að taka ekki eitthvað afmarkaðra fyrir. Þessi kennsluvefur og verklýsingabanki verður aldrei tilbúinn fyrr en undir haust og erfitt að ákveða hvaða hluta á að telja til verkefnisins sérstaklega. Þarf að ráðfæra mig við kennarann. Ég sé að Lovísa hefur verið duglegri en ég og bloggaði frá Barcelona. Ég og mín spúsa vorum svo upptekin við að taka út veitingastaðina og söfnin að ekkert annað komst að:) Illa gengur að auka tæknivæðingu heimilisins. Búinn að bíða eftir internetstengingu Breiðbandsins í mánuð. Gerðist áskrifandi og pantaði mann í verkið og svo bíð ég og bíð og bíð. Ég vona bara að sérfræðingurinn panti einhvern tíman hjá mér tertu í brúðkaup dóttur sinnar…………. Myndi líklega eitthvað heyrast ef hann þyrfti að bíða svona lengi eftir tertunni :-/
Bloggari: Ingólfur @ 4/30/2003 11:41:00 AM

30/04/2003 Posted by | Óskilgreint | Leave a Comment

Uppskriftir

Búinn að sitja yfir Dremweaver og umskrifa uppskriftir fyrir bakaravefinn Dálítið hallærislegt að vera með uppskriftasíðu en uppskriftirnar vantar. Búinn að bæta aðeins úr því en þetta er seinlegt svo það á eftir að taka tíma að setja í alla flokka. Búinn að setja nokkrar í flokkinn kökur
Bloggari: Ingólfur

31/03/2003 Posted by | Óskilgreint | Leave a Comment

Bráðum kemur Páskafrí ;-)

Jæja, mættur á bloggið eftir mikið annríki undanfarið. Eru fleiri en ég sem sjá páskafríið í hillingum. Lúinn eftir helgina, tveggja daga námskeið þar sem 11 konur voru mættar til að læra brauðbakstur. Matráðskonur á leikskólum, grunnskólum og hjúkrunarheimilum, hörkulið. Mjög gaman, a.m.k. hjá mér, ég vona að þær hafi haft eitthvað gagn og gaman af líka. Ég er alltaf að kljást við þessa hrúgu af táknum sem birtist einn daginn hér í bloggglugganum. Kemur þó alveg rétt út á vefnum. Ég sé að fleiri hafa verið að tala um þetta en ég hef ekki séð neinn koma með skýringu eða lausn á þessu máli. Þetta er svo sem ekki vandamál fyrst birtingin er í lagi, en heldur hvimleitt. Ég lét verða af því að kaupa mér firewirekort í heimilistölvuna um daginn svo nú er ég farinn að geta unnið með videobúta úr stafrænu videokamerunni (hvenær sem tími verður nú til þess). Enn fremur er ég búinn að kaupa áskrift að breiðbandinu internet, stóð reyndar í þeirri trú að lagnirnar væru til staðar í nýja húsinu en auðvitað reyndist það ekki vera. Fæ mann í vikunni til að kippa því í liðinn $$$$$. Þá kemst á langþráð sítenging og símreikningurinn lækkar vonandi umtalsvert.
Bloggari: Ingólfur

31/03/2003 Posted by | Óskilgreint | Leave a Comment

Skilaverkefni í KHÍ

Veit ekki hvort ég er alveg að skilja rétt þessa síðu sem Lára vill fá á tveim tungumálum, skildi ekki fullkomlega fyrirmælin. En hér kemur allavega síðan UST í kennslu og hér kemur síðan IT in teaching. Vona að enskan sé í lagi ……hm.
Bloggari: Ingólfur

17/03/2003 Posted by | Óskilgreint | Leave a Comment

Hæfileikar!!

Ég sé það nú þegar ég er að skoða bloggsíðurnar hjá samnemendum mínum að ég þarf að fara að poppa þetta eitthvað upp hjá mér. Rosalega er fólk orðið flinkt í þessu. Spjallgluggar, fullt af linkum o.s.frv. Ég er búinn að vera í mesta basli með að setja inn linka. Var dálítið að prófa þetta fyrst en hef ekki þorað að eiga mikið við þetta því ég var alltaf að rústa bloggsíðunni. Skipti oft um template og er bara nokkuð sæll með mig í hvert sinn sem ég blogga án þess að brengla síðuna :)
Bloggari: Ingólfur

14/03/2003 Posted by | Óskilgreint | Leave a Comment

Samantekt frá UT

Loksins kem ég í verk að blogga eftir UT. Búið að vera brjálað að gera í vinnunni í MK og verður fram að páskafríi (farinn að telja niður). Mér fannst virkilega gaman á Akureyri en hefði viljað fá tækifæri til að sjá miklu fleiri fyrirlestra. Skil ekki af hverju þeir eru ekki afmarkaðir við styttri tíma og endurteknir a.m.k. einu sinni. Ég er búinn að gera samantekt (samkvæmt fyrirmælum Láru Stefánsdóttur) um tvo af þeim fyrirlestrum sem ég sá. Ég set linka í samantektirnar (vona að þetta virki nú hjá mér). Báðir voru þessir fyrirlestrar á Laugardeginum. Sá fyrri var kl 13 í stofu B05. Fyrirlesari var Tryggvi Gíslason og viðfangsefnið var „Framtíðin í ljósi fortíðar“. Seinni fyrirlesturinn var kl. 14 í stofu C03 og þar fjallaði Ásrún Matthíasdóttir um „Úttekt á íslenskum vefsíðum“. Bloggari: Ingólfur

14/03/2003 Posted by | Óskilgreint | Leave a Comment

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.