Nýjar bloggfærslur frá 20. desember
Hæ öll.
Margir hafa haft samband og kvartað yfir bloggleysi enda hefur ekkert verið bloggað lengi. Maður segir eins og tæknitröllin, af tæknilegum ástæðum hefur ekki verið hægt að setja bloggið út á vefinn en ég hef reynt að blogga í bók á meðan. Nú er þetta allt saman komið inn en sumar af gömlu færslunum eru breyttar vegna þess að hluti af þeim eyddist út. Vonandi gerist svona lagað ALDREI aftur.
Með bestu bloggkveðjum
Ingólfur
Björgvin Páll og “Stóra HK málið!!!”
Ég finn að þetta hefur eðlilega haft talsverð áhrif á þig en þau hafa bara styrkt þig og opinberað litlu kallana í málinu. Ég er og verð alltaf Frammari og er að því leitinu ánægður með niðurstöðu málsins. Þannig er nú það . . . . . . .
Bestu kveðjur frá Ingólfi
Fjölmiðlafár
Afar athyglisvert hefur verið að fylgjast með fjölmiðlum undanfarna viku. Forstöðumaður Samfés sem eru samtök félagsmiðstöðva á Íslandi þurfti að “svara til saka” fyrir stjórnendum Kastljóss síðastliðið mánudagskvöld vegna þess að Samfés hafði sagt upp samningum við hljómsveitina Mínus varðandi spilamennsku á unglingadansleik. Tilefni uppsagnarinnar var blaðaviðtal í erlendu blaði þar sem Mínus-meðlimir upplýstu viðhorf sín til fíkniefna og fíkniefnanotkunar á vægast sagt sláandi hátt. Sem foreldri tveggja unglinga finnst mér ákvörðun Samfés til fyrirmyndar enda standa samtökin fyrir vímulausum skemmtunum og eðlilegt að velja skemmtikrafta sem geta talist heilbrigðar fyrirmyndir. Ég spurði mína unglinga hvað þeim fyndist um ákvörðun Samfés og þeim fannst greinilega mjög eðlilegt að neita þeim um að spila á umræddum dansleik. Þess vegna kom mér mjög á óvart hversu harkaleg viðbrögð stjórnenda Kastljóss voru gagnvart forstöðumanninum. Þau töluðu um tvískinnung Samfés þar sem samtökin höfðu boðið Mínusmönnum að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis að umrætt blaðaviðtal væri ekki sannleikanum samkvæmt. Mér fannst hins vegar fullkomlega eðlilegt að fara fram á slíka yfirlýsingu, og í raun vel boðið af hálfu Samfés, þar sem algengt er að hljómsveitir markaðssetji sig með ýmsum “skreytingum” sem e.t.v. eiga ekki alltaf við rök að styðjast. Í kjölfar þess að hljómsveitarmeðlimir neituðu að skrifa undir yfirlýsinguna, en voru tilbúnir að skrifa undir aðra þess efnis að þeir ætluðu ekki að neyta eiturlyfja á umræddum dansleik (góðir strákar!), rifti Samfés samningum við hljómsveitina enda í raun ekkert annað í stöðunni ef litið er til þess sem samtökin standa fyrir. A þáttastjórnendur Kastljóss, sem er fréttatengdur þáttur í sjónvarpi allra landsmanna skuli taka svo augljósa afstöðu gegn ábyrgri afstöðu Samfés í jafn mikilvægu máli vekur upp spurningar um dómgreind þeirra og siðferði. Umræddur þáttur var talsvert í umræðunni á mínum vinnustað sem er fjölmennur framhaldsskóli og þar þykja forstöðumenn Samfés hafa tekið hárrétt á málum.
Eru unglingar metnaðarlausir?
Við hjónakornin fórum á fund í Rimaskóla í gærkvöldi sem foreldrar 10. bekkinga skólans voru boðaðir á. Tilefnið var komandi samræmd próf, vorferðalag o. fl. Greinilegt var að kennarar skólans telja nemendur ekki vera að leggja nógu hart að sér við námið. Metnaðar- og áhugaleysi, jafnvel vonleysi voru orð sem þeir notuðu til að lýsa almennu ástandi í 10. bekk. Ég hef heyrt kennara í MK nota svipuð lýsingarorð um marga nýnema skólans. Sumir segja að árgangurinn nú sé mun áhuga- og metnaðarlausari en sá sem innritaðist haustið 2002. Kannski er það rétt, kannski ekki. Ég er ekki sannfærður um að hér sé einhver þróun á ferðinni en það hlýtur þó að vera ástæða til að staldra við og rannsaka hvort það geti verið. Ég var nýlega að lesa grein sem birtist í tímariti í Bandaríkjunum og fjallar um dulin skilaboð fjölmiðla sem með tilkomu nýrra miðla hafa fengið stóraukið vægi og áhrif. Markhópurinn er ekki síst börn og unglingar. Talað var um eins konar heilaþvott heillar kynslóðar gegnum sjónvarpsþætti, kvikmyndir, myndbönd, tölvur, auglýsingaskilti o.fl. Greinin var mjög sláandi og ég hef hugsað mikið um þetta og velti þessu mikið fyrir mér eftir umræddan fund í gærkvöldi. Ég upplifi mína tvo unglinga (14 og 16 ára) horfa mjög mikið á sjónvarp og myndbönd auk þess að nota tölvur mikið til samskipta o.fl. Ég, sem foreldri, hef tekið eftir a.m.k. einni mjög áberandi breytingu á erlendri og íslenskri sjónvarpsþáttagerð sem ég hef áhuga á að velta hér upp. Börnin mín (sérstaklega strákurinn minn, 14 ára) sitja límd fyrir framan skjáinn yfir þáttum eins og Fear factor, Survivor, American Idol, Super model of the world og hvað þetta heitir nú allt saman að ógleymdum innlendum þáttum eins og popTv og svínasúpu. Hver er boðskapur þessara þátta? Í fyrsta lagi persónumótun og dýrkun ákveðinna persónueinkenna. Allir eiga að vera fallegir, spengilega vaxnir, sterkir og áræðnir, gáfaðir, syngja og dansa gullfallega o.s.frv. Ég held að það sé veruleg hætta á að unglingar sem festast í þessari veruleikamótun upplifi hlutina þannig að ef þeir uppfylli ekki þessar kröfur þá hafi þeir “tapað” eins og allir þeir sem ekki eru sigurvegarar í ofantöldum þáttum. Annar boðskapur sem er áberandi og þá ekki síst í íslensku þáttunum er algjört virðingarleysi gagnvart öllu og öllum. Öllum góðum gildum er gefið langt nef, ekkert er heilagt og allt er látið flakka. Því hortugra, því betra. Því klámfengnara, því flottara. Því ruttalegra, því meira “töff”. Getur verið að það sé eitthvað til í því að áhrif þessarar holskeflu miðlunar séu jafn alvarleg og höfundur greinarinnar heldur fram? Ég þykist vita að fólk hafi mismunandi skoðanir á málinu en ég held að allir geti verið sammála um eitt. Á örfáum árum hefur “sársaukastuðullinn” hvað varðar hátterni og orðbragð í fjölmiðlum snarhækkað. Enginn kippir sér upp í dag við hluti sem hefðu valdið andköfum og hneykslan fyrir nokkrum árum. Í stuttu máli virðist mér að í ákveðnum þáttum sé megin inntakið að viðhorfið gagnvart manneskjum og málefnum eigi helst að vera “FUCK YOU, I DON´T GIVE A SHIT”!
Lotan búin.
Jæja, þá er lokið þessari staðbundu lotu í kennó. Margmiðlun í námi og starfi heitir áfanginn og kennarar eru lektorarnir Salvör Gissurardóttir og Stefán Jökulsson. Því miður missti ég af ansi stórum hluta gærdagsins þar sem ég var fastur í kennslu en þá var farið í notkun forritanna CoolEdit sem er hljóðvinnsluforrit og MovieMaker sem er videó klippiforrit. Í dag var farið í Flash sem er mikið notað við hreifimyndagerð og Mediator sem er að ýmsu leyti hliðstætt forrit en mun einfaldara og aðgengilegra en Flash sem er “professional” forrit úr Macromedia fjölskyldunni. Þessi lota var mjög gagnleg og áhugaverð en mér þótti verst að missa af hljóðvinnslunni því það litla sem ég sá var mjög spennandi. Nú er bara að bretta upp ermar og fara að vinna verkefnavinnuna. Ég er mjög feginn að ég skráði mig á fyrstu umsjónarlotuna í leshringnum hjá Sólveigu því ég er búinn að setja inn mitt innlegg og get einbeitt mér að þessu fram að helgi.
Bloggari: Ingólfur
UT2003 á Akureyri
Jæja, þá er UT-ráðstefnan búin, takk fyrir síðast, þið sem ég hitti á Akureyri. Mér fannst ráðstefnan í heild sinni góð, fjalla nánar um það í samræmi við fyrirmæli sem eiga eftir að berast. Mig vantar smá ráðleggingar frá tæknifróðum aðilum varðandi val á sítengingu um breiðband, ISDN eða ADSL. Það er breiðbandstenging til staðar inn í húsið hjá mér þannig að mér finnst dálítið spennandi að nýta mér hana. Mér skilst að mjög séu skiptar skoðanir um hver þessara tenginga sé best. Getur einhver frætt mig dálítið um það? Ef svo er vinsamlegast sendið mér póst á netfangið mitt is@mk.is Kveðja Ingólfur
Bloggari: Ingólfur
Paella og vino Blanco
jaeja. Tveir dagar eftir af thessu dasamlega frii. Frabaert a strondinni i gaer. Passleg hafgola sem tempradi hitann. Vid brunnum samt adeins tvi golan blekti dalitid. Forum thess vegna rolega i solinni i dag. Bordudum a fabaerum stad i hadeginu (Reaturante del casa de Fanco), fengum okkur Paellu og 2 hvitvinsfloskur (thurftum ad bida svo lengi eftir matnum:-) unglingarnir longu buin ad borda thega Paellan kom. Var tho vel bidarinnar virdi. Aetlum nu (kl. 15) inn i Malaga til ad versla
bara fyrir ungmeyjuna. Aftr a strondina a morgun (sidasta daginn). IS
Bloggari: Ingólfur
Kynning

Komið þið sæl. Ég heiti Ingólfur Sigurðsson og starfa sem fagstjóri og kennari við bakaradeild Hótel- og matvælaskólans í MK. Ég er fæddur 8. desember 1960, er giftur Birnu Bjarnadóttur viðskfr. og eigum við tvö börn, stúlku (f. ´88) og dreng (f. ´90). Ég lærði bakaraiðn í Álfheimabakaríi og útskrifaðist frá IR 1983. Meistararéttindi í bakstri 1985. Starfaði í greininni til 1996, þar af við rekstur á eigin bakaríi í 8 ár. Á þessum tíma starfaði ég mikið að ýmsum félagsmálum bakara og geri raunar enn. Má þar nefna stjórnarsetu í Landssambandi bakarameistara, stofnfélagi Klúbbs bakarameistara, prófdómari í sveinsprófsnefnd, sit nú í nemaleyfisnefnd, fagnefnd og fræðslunefnd bakara. Vorið 1996 ákvað ég að söðla um og tók að mér að byggja upp bakaradeild í hinum nýja Hótel- og matvælaskóla sem þá var verið að byggja í Kópavogi. Hóf svo kennslu þar um haustið. Uppeldis- og kennslufræði lauk ég frá KHÍ vorið 2000. Ég hef orðið var við að sumum af kollegum mínum í verknáminu finnst langsótt að innleiða tölvunotkun í verknámskennslu. Ég er því ósammála og tel mikla möguleika ónýtta þar. Síðastliðinn vetur gerði ég tilraun með að kenna fagfræði bakara að hluta til í gegnum WebCt og var mjög ánægður með árangurinn. Þess utan er ég spenntur fyrir námsefnisgerð á margmiðlunarformi auk þess sem ég hef áhuga á að bjóða nemendum á landsbyggðinni að ljúka bóklegum hluta námsins í fjarkennslu. Ég hef lokið nokkrum námskeiðum tengdum tölvunotkun s.s.: Dreifmennt, tölvustudd kennsla, Dreamwiever 1, Dreamwiever 2, WebCt 1, Director o.fl. Bestu kveðjur Ingólfur Sigurðsson is@mk.is
Bloggari: Ingólfur
Að ná tökum á tækninni
Meira hvað það getur vafist fyrir manni að setja upp og lagfæra svona fyrirbæri eins og bloggsíðuna. Búinn að margreyna að skipta um template en gengið illa. Þrautalendingin var að reyna að fríska upp á það sem ég virðist vera “stuck” með. Dálítið maus, a.m.k. meðan maður kann ekki almennilega á þetta. Þetta hlýtur að koma með æfingunni. Búinn að vera erfiður dagur enda búin að hlaðast upp verkefnin meðan ég var “að leika mér í skólanum” eins og samkennarar mínir orða það
Góða helgi!
Bloggari: Ingólfur @ 1/17/2003 05:07:00 PM
Erum við, sem aðhyllumst upplýsingatækni í kennslu, sértrúarsöfnuður.
Í dag var síðasti dagur staðbundinnar lotu í KHÍ. Þar messaði yfir okkur dugmikið hugsjónafólk um UST eins og “tjona”, “sibba”, Salvör og fleiri. Áhugavert og vel fram sett efni um kennslufræði, hugbúnað og vélbúnað en meðan ég hlustaði velti ég fyrir mér þeim veruleika sem flest okkar búum við í vinnu okkar sem kennarar. Hversu hyldjúp gjá sem mér virðist vera á milli þeirrar framtíðarsýnar sem þetta fólk og sjálfsagt flest okkar viljum sjá og þess miðstýrða menntakerfis sem við búum við. Samræmd próf í grunnskólum og áform um samræmd próf í framhaldsskólum. Innra (og ytra) mat í skólum sem byggist eingöngu á megindlegum niðurstöðum. Hvernig er hægt að sætta þessi sjónarmið við hugtök eins og virkt, nemendamiðað samvinnunám meðan stjórnkerfi menntakerfisins virðist vera ofurselt prófafíkn. Svartsýnn maður hlýtur að búast við hörðum árekstri milli þessara tveggja ólíku póla í náinni framtíð. Ég ætla þó að vera bjartsýnn og vona að hægt og sígandi mýkist áherslur í ráðuneyti voru. Aldrei að vita nema einhver úr “söfnuðinum” verði einhvern tíma menntamálaráðherra og þá……………:-)
Bloggari: Ingólfur @ 1/16/2003 11:03:00 PM
-
Archives
- January 2009 (9)
- December 2008 (34)
- November 2008 (12)
- September 2008 (1)
- March 2008 (3)
- February 2004 (2)
- January 2004 (4)
- October 2003 (1)
- June 2003 (6)
- April 2003 (1)
- March 2003 (6)
- February 2003 (4)
-
Categories
-
RSS
Entries RSS
Comments RSS