Vinaboð – taka 2
Jæja, nú gekk allt upp í sambandi við undirbúning og framkvæmd að hittingnum hjá vinahópnum. Það dróst sem sagt um viku frá upphaflegu áætlununum en það gerir svo sem ekkert til fyrst þetta gekk upp að lokum. Matseðill kvöldsins var: Forréttur: Reykt bleykja á pastabeði; bls. 71 Gestgjafinn – 140 bestu uppskriftirnar 2008. Aðalatriðið í þessum rétti var silungurinn sem Denni veiddi í Eyjafjarðará og lét reykja. Reyndist frábær á bragðið. Aðalréttur: Bobotie (Suður-Afrískur hakkréttur); bls. 14 Gestgjafinn – bestu uppskriftirnar 2007. Eftir mikla leit að lambahakki fannst loksins blandað hakk (lamba og nauta) í Nóatúni á Háaleitisbraut sem notað var í blandi við svínahakk. Kom mjög vel út. Mikilvægt er að nota ekki nautahakk að meirihluta því rétturinn á að vera mildur og kryddast samkvæmt því. Eftirréttur: Súkkulaði Creme Brulêe; bls. 119 Nói Síríus, Súkkulaðiást 2008. Uppistaðan var 70%súkkulaði frá Nóa Síríus en helmingað með Amedei 70% Chuao súkkulaði. Þessi súkkkulaðiblanda var mögnuð. Með þessum rétti var drukkið unaðslegt vín frá Vín og mat og heitir Nostalgia, Rare Tawny frá framleiðandanum D´Arenberg. Þetta vín er búið til úr elstu og bestu þrúgunum sem D´Arenberg framleiðir úr á hverju ári. Sett á eikartunnur og látið gerjast og þorna upp þar til það er orðið 20% að styrkleika og nær þessum guðdómlega lit, ilm og bragði. Fólkið virtist vera ánægt með matinn er auðvitað er það fyrst og fremst félagsskapurinn sem skiptir máli á svona vinamótum. Það er ekki hægt að neita því að við söknum vina okkar frá Svíþjóð, þeirra Anders og Jóhönnu Fríðu sem voru með frá upphafi og þar til þau fluttu búferlum til Uddevalla í Svíþjóð fyrir u.þ.b. 5 árum síðan. Við fengum góða félaga í staðin fyrir Anders og Hönnu eða Baldur og Björgu. Aðrir í hópnum eru auk mín og Birnu: Atli og Brynja, Ásta og Ormur, Kristín og Birgir.
3 Comments »
Leave a Reply
-
Archives
- January 2009 (9)
- December 2008 (34)
- November 2008 (12)
- September 2008 (1)
- March 2008 (3)
- February 2004 (2)
- January 2004 (4)
- October 2003 (1)
- June 2003 (6)
- April 2003 (1)
- March 2003 (6)
- February 2003 (4)
-
Categories
-
RSS
Entries RSS
Comments RSS
Get ýmindað mér að maturinn var góður, eins og alltaf hjá ykkur vinahópnum. Við söknum ykkar aldeilis mikið líka.
Verðum í sambandi.
Knús og klem,
Þín Hanna Fríða
Maturinn var í einu orði sagt frábær og vinahópurinn ekki síðri. Ég er sammála þér Ingó að við söknuðum nú þeirra í Sverige.
Takk fyrir okkur,
Ásta og Ommi
Elsku vinur,
Takk, takk og aftur takk. Pínulítið sein en góð vísa er aldrei of kveðin eins og einhver sagði. Yndislegt í alla staði fyrir utan að koma sér fyrr heim:-) Love you!