Gott kvöld
Birna fékk mig til að koma með sér í kvöldgöngu með föngulegum hópi vinnufélaga sem hefur farið reglulega í sirka klukkutíma langar gönguferðir um mismunandi slóðir. Það er þá gjarnan sá eða sú sem býr í viðkomandi hverfi eða þekkir staðhætti einna best sem stjórnar ferðinni og segir frá því sem markvert ber fyrir augu. Í gær hafði verið ákveðið að hittast kl. 18 við verslunarhúsið Grímsbæ við Bústaðaveg og ganga um Fossvoginn. Að þessu sinni voru tvær röggsamar konur sem búa í Fossvoginum og skiptu þ.a.l. með sér að segja frá ef eitthvað merkilegt varð á vegi okkar. Að þessu sinni var það nú helst hvaða bankamilli bjó í einni villunni og hvar eigandinn að annari villu átti annað einbýlishús í hverfinu. En burt séð frá þessum sögum sem krydduðu gönguna þá er þetta hverfi mjög skemmtilegt til gönguferða og mörg gríðarlega falleg hús að sjá, sérstaklega neðst í dalnum. Ekkert skrítið við það að fólk með rúm fjárráð reyni að eignast hús á þessu svæði. Klukkan var nákvæmlega 19 þegar við komum aftur að Grímsbæ þannig að það má hrósa göngustjórum fyrir gott skipulag. Þar skildu einnig leiðir og var fólk ánægt með gönguna enda hressandi og mátulega langur göngutúr.
Við Birna vorum svo heppin að vera boðin í mat til Adda og Rakelar svo við brunuðum beint af stað til þeirra. Það var virkilega notalegt að koma á Sundlaugarveginn, Arnar var einmitt að renna í hlaðið sjálfur þegar við komum, var að kenna í Nýja-Tónlistarskólanum. Rakel var að stússast í matartilbúningi og ilmurinn úr eldhúsinu var lokkandi eins og einhvers staðar stendur skrifað. Við vorum dálítið þreytt, eftir gönguna a.m.k. ég, en þreytan var fljót að renna af okkur í notalegheitum og glasi af hvítvíni. Maturinn var svo hreint frábær, hefði sómt sér á hvaða veitingastað sem væri. Forrétturinn léttur og góður og pastarétturinn sem fylgdi í kjölfarið var algjört sælgæti. Eftir matinn voru allir pakksaddir og börnin fóru að hátta sig fyrir svefninn. Arnar er alltaf að velta upp nýjum og spennandi hugmyndum í tengslum við fyrirtækið sem er gaman að ræða við hann um. Gréta var mjög spennt í gær að bíða eftir úrslitum á tölvunni því hún er þátttakandi í áheyrnarprufum fyrir Söngvaseið sem á að fara að setja upp á svið í Borgarleikhúsinu. Í morgun fréttum við svo að nú er komið í ljós að hún er komin áfram í þriðju umferð sem fer fram um næstu helgi. Eftir þær prufur verða 12 börn valin í sýninguna úr þeim 80 börn sem nú eru komin í gegn. Ég er sannfærður um að hún muni standa sig frábærlega um næstu helgi. Hún er svo listræn í sér og syngur og dansar mjög vel. Ég fór að verða lúinn og við rúlluðum heim, vorum enn með góða matarbragðið í munninum. Spurning hvort ég fæ uppskriftina hjá Rakel til að lauma hér inn á næstu dögum. Vel þess virði eð geta flett henni hér upp einhvern tíman seinna. Líklega einhver besti pastaréttur sem ég hef bragðað. Þannig var nú það.
Laugardagsnammi
Hitti minn frábæra lækni Friðbjörn á fimmtudaginn 8. Jan. Það var orðið ansi langt síðan ég hitti hann síðast. Ég útskrifaðist af 11-E mánudaginn 15. Des. og hitti svo Friðbjörn fimmtudaginn á eftir eða 18. Desember. Við komum okkur saman um að taka okkur gott frí (3 vikur) frá læknastússi og lyfjameðferðum ef ekkert kæmi upp á. Það hefur sem betur fer orðið raunin, ekkert neikvætt hefur gerst. Eina vandamálið var að ég var ekki með blóðprufubeiðni en ég fór klukkutíma fyrr og talaði við Kristínu hjúkrunarfræðinginn minn á 11-B og hún var nú ekki lengi að bjarga því á staðnum. Þannig að ég komst í blóðsýnatöku og var þannig með niðurstöður sem Friðbjörn gat skoðað þegar við hittumst á fundinum.
Það var gott að hitta lækninn og hann skoðaði mig vel og spjallaði við okkur Birnu góða stund. Níðurstöðurnar úr blóðprufunum voru ágætar. Blóðgildin voru fín en krabbameins-gildin höfðu aukist eins og hætt var við þar sem engin meðferð var í gangi. Við ákváðum samt að geyma lyfjagjöf í 2 vikur í viðbót og hittast næst 22. Janúar. Það var hins vegar eins og þessi heimsókn hafi sett af stað einhverja óáran því ég hef verið í hálfgerðu ólagi síðan. Fór að fá sívaxandi verk í hægri kviðvegginn (þar sem æxlismyndun er í gangi) auk þess sem bölvað ólag hefur verið á losun frá frárennslisgöngunum, þeim eystri, þ.e.a.s. ef horft er í norður Þar hafa komið við sögu alls kyns lyf í margs konar formi, svo sem duft, töflur, vökvi og meira að segja stílar sem er nú það versta af upptöldu. Ég hef þurft að leita mikið til heimahlynningarinnar og hafa þau verið betri en enginn. Þau virðast kunna ráð við flestu enda fólk með ótrúlega mikla reynslu.
Stundum er það samt þannig að maður fær nóg og finnst engin ráð duga. Þannig var það í gær. Ég veit að líðanin hefur líka mikið með dagsformið að gera, þ.e.a.s. hvernig skapið er og þolinmæðin. Ég hringdi í lækninn minn þegar mér fannst ég vera kominn á varatankinn af þolinmæði. Það er eitt af því sem ég kann svo vel við hann að hann svarar símanum mjög oft strax en hringir að öðrum kosti mjög fljótt til baka ef hann hefur ekki geta tekið símtalið strax. Það er mín reynsla að það er ekki sjálfgefið að menn í slíkum störfum sýni þannig þjónustulund. Hann var ekki ánægður að heyra hvað ég var óhress og sagði mér að taka meira af lyfjum. Það er ekki alveg það sem ég er hrifnastur af, og hann veit það, en hann vill einfaldlega alls ekki að hans sjúklingar séu með verki. Allt annað er betra að hans mati og hann sagði að ég ætti að taka bæði meira af hægðalyfjum og meira af verkjalyfjum (mjög spennandi). Hann ætlar samt að tala við geislalækninn sem hefur áður gefið mér geislameðferð ,til verkjastillingar, með góðum árangri. Ég vona að sá kostur gangi upp því ég vil það frekar heldur enn meira af pillum. Mér finnst lyfjaboxið mitt vera farið að líta út eins og sölubox fyrir laugardagsnammi í 10-11.
-
Archives
- January 2009 (9)
- December 2008 (34)
- November 2008 (12)
- September 2008 (1)
- March 2008 (3)
- February 2004 (2)
- January 2004 (4)
- October 2003 (1)
- June 2003 (6)
- April 2003 (1)
- March 2003 (6)
- February 2003 (4)
-
Categories
-
RSS
Entries RSS
Comments RSS