Ingólfur Sigurðsson bloggar

Segðu fátt en segðu það vel

Pastauppskriftin góða frá Rakel

Jæja, eins og þið kannski sáuð þá setti Arnar inn athugasemd þar sem hann skoraði á Rakel að deila með okkur uppskriftinni góðu af pastaréttinum, og viti menn. Rakel ákvað að veita okkur innsýn í uppskriftabókina sína. Arnar setti sem sagt uppskriftina inn á “bloggsíðu víns og matar“ og ég hef hér með hlekkjað hana þannig að með því að smella innan gæsalappanna þá ferð þú inn á síðuna. Sem sagt tvær flugur í einu höggi því bloggsíðan hjá vín og mat er mjög skemmtileg og fróðleg enda er hún tilgreind hér á bloggvinalistanum hjá mér.

19/01/2009 Posted by Ingolfur Sigurdsson | Dagbókin | | No Comments Yet

Vinaboð – Taka 2 1/2

vinahopur

Vinahópur á árshátíð 2008/2009

brynja ormur

Brynja og Ommi í fíling

 

asta atli

Ásta að spauga við Atla

bjorg birgir

Björg og Birgir kankvís á svipin

 
 
 

 

Vinahópurinn að njóta matarins (forrétturinn)

Vinahópurinn að njóta matarins (forrétturinn)

   
Ég og Ásta; getur fólk aldrei verið til friðs;-)

Ég og Ásta; getur fólk aldrei verið til friðs;-)

  
eg birgir atli

Ég, Birgir og Atli í góðum gír.

 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Atli að missa sig yfir einhverju. Björg og Birgir fylgjast með.

Atli að missa sig yfir einhverju. Björg og Birgir fylgjast með.

 

Kristin og Baldur

Kristín og Baldur

 
 
 
 
Ommi og Birna að flippa út

Ommi og Birna að flippa út

 

17/01/2009 Posted by Ingolfur Sigurdsson | Myndablogg | | 3 Comments

Vinaboð – taka 2

Jæja, nú gekk allt upp í sambandi við undirbúning og framkvæmd að hittingnum hjá vinahópnum. Það dróst sem sagt um viku frá upphaflegu áætlununum en það gerir svo sem ekkert til fyrst þetta gekk upp að lokum.  Matseðill kvöldsins var: Forréttur: Reykt bleykja á pastabeði; bls. 71 Gestgjafinn – 140 bestu uppskriftirnar 2008. Aðalatriðið í þessum rétti var silungurinn sem Denni veiddi í Eyjafjarðará og lét reykja. Reyndist frábær á bragðið. Aðalréttur: Bobotie (Suður-Afrískur hakkréttur); bls. 14 Gestgjafinn – bestu uppskriftirnar 2007. Eftir mikla leit að lambahakki fannst loksins blandað hakk (lamba og nauta) í Nóatúni á Háaleitisbraut sem notað var í blandi við svínahakk. Kom mjög vel út. Mikilvægt er að nota ekki nautahakk að meirihluta því rétturinn á að vera mildur og kryddast samkvæmt því. Eftirréttur: Súkkulaði Creme Brulêe; bls. 119 Nói Síríus, Súkkulaðiást 2008. Uppistaðan var 70%súkkulaði frá Nóa Síríus en helmingað með Amedei 70% Chuao súkkulaði. Þessi súkkkulaðiblanda var mögnuð.  Með þessum rétti var drukkið unaðslegt vín frá Vín og mat og heitir Nostalgia, Rare Tawny frá framleiðandanum D´Arenberg. Þetta vín er búið til úr elstu og bestu þrúgunum sem D´Arenberg framleiðir úr á hverju ári. Sett á eikartunnur og látið gerjast og þorna upp þar til það er orðið 20% að styrkleika og nær þessum guðdómlega lit, ilm og bragði. Fólkið virtist vera ánægt með matinn er auðvitað er það fyrst og fremst félagsskapurinn sem skiptir máli á svona vinamótum. Það er ekki hægt að neita því að við söknum vina okkar frá Svíþjóð, þeirra Anders og Jóhönnu Fríðu sem voru með frá upphafi og þar til þau fluttu búferlum til Uddevalla í Svíþjóð fyrir u.þ.b. 5 árum síðan. Við fengum góða félaga í staðin fyrir Anders og Hönnu eða Baldur og Björgu. Aðrir í hópnum eru auk mín og Birnu: Atli og Brynja, Ásta og Ormur, Kristín og Birgir.

17/01/2009 Posted by Ingolfur Sigurdsson | Dagbókin | | 3 Comments

Gott kvöld

Birna fékk mig til að koma með sér í kvöldgöngu með föngulegum hópi vinnufélaga sem hefur farið reglulega í sirka klukkutíma langar gönguferðir um mismunandi slóðir. Það er þá gjarnan sá eða sú sem býr í viðkomandi hverfi eða þekkir staðhætti einna best sem stjórnar ferðinni og segir frá því sem markvert ber fyrir augu. Í gær hafði verið ákveðið að hittast kl. 18 við verslunarhúsið Grímsbæ við Bústaðaveg og ganga um Fossvoginn. Að þessu sinni voru tvær röggsamar konur sem búa í Fossvoginum og skiptu þ.a.l. með sér að segja frá ef eitthvað merkilegt varð á vegi okkar. Að þessu sinni var það nú helst hvaða bankamilli bjó í einni villunni og hvar eigandinn að annari villu átti annað einbýlishús í hverfinu. En burt séð frá þessum sögum sem krydduðu gönguna þá er þetta hverfi mjög skemmtilegt til gönguferða og mörg gríðarlega falleg hús að sjá, sérstaklega neðst í dalnum. Ekkert skrítið við það að fólk með rúm fjárráð reyni að eignast hús á þessu svæði. Klukkan var nákvæmlega 19 þegar við komum aftur að Grímsbæ þannig að það má hrósa göngustjórum fyrir gott skipulag. Þar skildu einnig leiðir og var fólk ánægt með gönguna enda hressandi og mátulega langur göngutúr.
Við Birna vorum svo heppin að vera boðin í mat til Adda og Rakelar svo við brunuðum beint af stað til þeirra. Það var virkilega notalegt að koma á Sundlaugarveginn, Arnar var einmitt að renna í hlaðið sjálfur þegar við komum, var að kenna í Nýja-Tónlistarskólanum. Rakel var að stússast í matartilbúningi og ilmurinn úr eldhúsinu var lokkandi eins og einhvers staðar stendur skrifað. Við vorum dálítið þreytt, eftir gönguna a.m.k. ég, en þreytan var fljót að renna af okkur í notalegheitum og glasi af hvítvíni. Maturinn var svo hreint frábær, hefði sómt sér á hvaða veitingastað sem væri. Forrétturinn léttur og góður og pastarétturinn sem fylgdi í kjölfarið var algjört sælgæti. Eftir matinn voru allir pakksaddir og börnin fóru að hátta sig fyrir svefninn. Arnar er alltaf að velta upp nýjum og spennandi hugmyndum í tengslum við fyrirtækið sem er gaman að ræða við hann um. Gréta var mjög spennt í gær að bíða eftir úrslitum á tölvunni því hún er þátttakandi í áheyrnarprufum fyrir Söngvaseið sem á að fara að setja upp á svið í Borgarleikhúsinu. Í morgun fréttum við svo að nú er komið í ljós að hún er komin áfram í þriðju umferð sem fer fram um næstu helgi. Eftir þær prufur verða 12 börn valin í sýninguna úr þeim 80 börn sem nú eru komin í gegn. Ég er sannfærður um að hún muni standa sig frábærlega um næstu helgi. Hún er svo listræn í sér og syngur og dansar mjög vel. Ég fór að verða lúinn og við rúlluðum heim, vorum enn með góða matarbragðið í munninum. Spurning hvort ég fæ uppskriftina hjá Rakel til að lauma hér inn á næstu dögum. Vel þess virði eð geta flett henni hér upp einhvern tíman seinna. Líklega einhver besti pastaréttur sem ég hef bragðað. Þannig var nú það.

14/01/2009 Posted by Ingolfur Sigurdsson | Dagbókin | | 2 Comments

Laugardagsnammi

Hitti minn frábæra lækni Friðbjörn á fimmtudaginn 8. Jan. Það var orðið ansi langt síðan ég hitti hann síðast. Ég útskrifaðist af 11-E mánudaginn 15. Des. og hitti svo Friðbjörn fimmtudaginn á eftir eða 18. Desember. Við komum okkur saman um að taka okkur gott frí (3 vikur) frá læknastússi og lyfjameðferðum ef ekkert kæmi upp á. Það hefur sem betur fer orðið raunin, ekkert neikvætt hefur gerst. Eina vandamálið var að ég var ekki með blóðprufubeiðni en ég fór klukkutíma fyrr og talaði við Kristínu hjúkrunarfræðinginn minn á 11-B og hún var nú ekki lengi að bjarga því á staðnum. Þannig að ég komst í blóðsýnatöku og var þannig með niðurstöður sem Friðbjörn gat skoðað þegar við hittumst á fundinum.
Það var gott að hitta lækninn og hann skoðaði mig vel og spjallaði við okkur Birnu góða stund. Níðurstöðurnar úr blóðprufunum voru ágætar. Blóðgildin voru fín en krabbameins-gildin höfðu aukist eins og hætt var við þar sem engin meðferð var í gangi. Við ákváðum samt að geyma lyfjagjöf í 2 vikur í viðbót og hittast næst 22. Janúar. Það var hins vegar eins og þessi heimsókn hafi sett af stað einhverja óáran því ég hef verið í hálfgerðu ólagi síðan. Fór að fá sívaxandi verk í hægri kviðvegginn (þar sem æxlismyndun er í gangi) auk þess sem bölvað ólag hefur verið á losun frá frárennslisgöngunum, þeim eystri, þ.e.a.s. ef horft er í norður Þar hafa komið við sögu alls kyns lyf í margs konar formi, svo sem duft, töflur, vökvi og meira að segja stílar sem er nú það versta af upptöldu. Ég hef þurft að leita mikið til heimahlynningarinnar og hafa þau verið betri en enginn. Þau virðast kunna ráð við flestu enda fólk með ótrúlega mikla reynslu.
Stundum er það samt þannig að maður fær nóg og finnst engin ráð duga. Þannig var það í gær. Ég veit að líðanin hefur líka mikið með dagsformið að gera, þ.e.a.s. hvernig skapið er og þolinmæðin. Ég hringdi í lækninn minn þegar mér fannst ég vera kominn á varatankinn af þolinmæði. Það er eitt af því sem ég kann svo vel við hann að hann svarar símanum mjög oft strax en hringir að öðrum kosti mjög fljótt til baka ef hann hefur ekki geta tekið símtalið strax. Það er mín reynsla að það er ekki sjálfgefið að menn í slíkum störfum sýni þannig þjónustulund. Hann var ekki ánægður að heyra hvað ég var óhress og sagði mér að taka meira af lyfjum. Það er ekki alveg það sem ég er hrifnastur af, og hann veit það, en hann vill einfaldlega alls ekki að hans sjúklingar séu með verki. Allt annað er betra að hans mati og hann sagði að ég ætti að taka bæði meira af hægðalyfjum og meira af verkjalyfjum (mjög spennandi). Hann ætlar samt að tala við geislalækninn sem hefur áður gefið mér geislameðferð ,til verkjastillingar, með góðum árangri. Ég vona að sá kostur gangi upp því ég vil það frekar heldur enn meira af pillum. Mér finnst lyfjaboxið mitt vera farið að líta út eins og sölubox fyrir laugardagsnammi í 10-11.

14/01/2009 Posted by Ingolfur Sigurdsson | Dagbókin | | 1 Comment

Hittingur framundan

Nú er næsta pæling hjá okkur Birnu ÁRAMÓTAHITTINGUR vinahópsins. Eftir miklar pælingar og hringingar fram og til baka er ákveðið að stefna á laugardaginn 10. janúar. Það var einmitt þessi áramótahittingur fyrir ári síðan sem varð til þess að veikindin uppgötvuðust hjá mér. Þá voru það Baldur og Björg sem voru gestgjafarnir. Þessu háttaði þannig til að við Birna vorum að taka okkur til þegar ég fékk skyndilega mikla kviðverki. Við fórum nú samt í veisluna og næsta dag fann ég ekkert fyrir þessu. Á sunnudeginum fékk ég aftur slæma kviðverki og þá ákváðum við að hafa samband við heimilislækninn eftir helgina. Þá reyndist hann vera í fríi svo ég fékk samband við annan lækni á heilsugæslustöðinni. Sá var ekkert að tvínóna við neitt, kannski fékk hann svona ákveðinn grun strax, en hver sem nú orsökin var þá sendi hann mig í alls konar myndatökur og rannsóknir og út úr því kom það að ég var kominn í viðtal hjá krabbameinslækni viku síðar:-(

04/01/2009 Posted by Ingolfur Sigurdsson | Dagbókin | | No Comments Yet

Leti . . . .

Í gær 2. janúar var algjör letidagur enda má segja að þá hafi verið haldið upp á 2. í afmæli þar sem Laufey Sif og Arna vinkona hennar héldu sameiginlega afmælisveislu á Glaumbar í gærkvöldi. Þær keyptu af staðnum bjór úr krana (seldur í kútavís) og meiningin var að hann yrði bara seldur þar til afmælið kláraðist. Laufey og Arna voru ánægðar með hvernig til tókst með afmælisveisluna á Glaumbar. Þær halda að u.þ.b. 50 manns hafi mætt í veisluna.
Við Birna vöknuðum um hádegið og það var eins og það væri enginn í húsinu. ALLIR STEINSOFANDI! Nú liggur fyrir að framundan er afhending á íbúðinni á Eggertsgötu 4. Þau fá hana afhenta þann 5. janúar. Ekki er til setunnar boðið að fara að pakka. Við höfum verið að reyna að hreyfa við þeim en það er greinilega óskaplega gott að sofa. Á morgun, á morgun og hinn…

03/01/2009 Posted by Ingolfur Sigurdsson | Dagbókin | | No Comments Yet

Nýjar bloggfærslur frá 20. desember

Hæ öll.

Margir hafa haft samband og kvartað yfir bloggleysi enda hefur ekkert verið bloggað lengi. Maður segir eins og tæknitröllin, af tæknilegum ástæðum hefur ekki verið hægt að setja bloggið út á vefinn en ég hef reynt að blogga í bók á meðan. Nú er þetta allt saman komið inn en sumar af gömlu færslunum eru breyttar vegna þess að hluti af þeim eyddist út. Vonandi gerist svona lagað ALDREI aftur.

Með bestu bloggkveðjum

Ingólfur

02/01/2009 Posted by Ingolfur Sigurdsson | Dagbókin, Mikilvægt | | 2 Comments

Hún á afmæl´ún Laufey, hún á afmæl´í dag.

Fyrsti dagur ársins 2009 og það sem meira er afmælisdagur minnar elskulegu og sætu dóttur. Ef fyrsta línan í blogginu í gær og fyrsta línan í blogginu i dag eru skoðaðar og bornar saman er auðvelt að ímynda sér að mistök hafi átt sér stað, t.d. ásláttarvilla, en sannleikurinn er sá að þarna er ekki um nein mistök að ræða. Sætustu konurnar í mínu lífi eiga afmælisdaga sín hvoru megin við áramótin.

Þetta er líklega ekki besti dagur ársins til að eiga afmæli enda sagði Laufey það nú í kvöld að hún þyldi ekki þennan dag. Það væru allir sofandi eða þunnir nema hvorutveggja væri. Hvort sem það er rétt eða ekki þá er klárt að þetta er mikill letidagur.

01/01/2009 Posted by Ingolfur Sigurdsson | Dagbókin | | No Comments Yet

Hún á afmæl´ún Birna, hún á afmæl´í dag.

Síðasti dagur ársins og það sem meira er afmælisdagur minnar elskulegu og sætu eiginkonu. Við fórum í verslunarleiðangur um hádegið til að versla inn fyrir veisluna um kvöldið. Það vantaði eitt og annað, m.a. ýmislegt fyrir fyllinguna auk þess sem ég átti eftir að kaupa freyðivín. Vaskur var með okkur í bílnum því það var eiginlega eini staðurinn sem hann gat verið án þess að drepast úr hræðslu. Hann vill fyrst og fremst vera nálægt okkur. Þegar við vorum komin heim þá hringdi Elli bróðir og sagðist vera á leiðinni með slatta af flugeldum handa okkur ef við vildum. Ég þóttist vita að það yrði ekki slegið hendinni á móti því, Bjarni Grétar myndi í það minnsta taka þessari heimsókn fagnandi. Elli kom svo með eina stóra kappatertu og góðan fjölskyldupakka. Þetta gerir það að verkum að ég þarf ekki að leggja krónu í flugeldakaup þetta árið enda er ég alfarið á móti flugeldaskothríð af ástæðum sem ég hef áður nefnt þ.e.a.s. hvernig hundar og aðrir ferfætlingar verða skelfingu lostnir af hennar völdum. Hins vegar styð ég heils hugar þau félög sem standa á bak við stærstan hluta flugelda-sölunnar, þ.e. björgunar og hjálparsveitir skáta og fleiri slík samtök. Ég vildi bara óska að þau gætu aflað sér fjár með öðrum hætti en með flugeldasölu. Guffa, ásamt Agli Orra og Aldísi Öglu, kom með lúpínuseiði handa mér, sem kom sér vel því ég var akkúrat að klára birgðirnar mínar. Siggi bróðir kom svo stuttu seinna og var þá á leiðinni í verslunarleiðangur fyrir kvöldmatinn. Atli og Brynja löbbuðu við hjá okkur til að knúsa Birnu í tilefni afmælisins.

31/12/2008 Posted by Ingolfur Sigurdsson | Dagbókin | | No Comments Yet